1974: St. Georgsdagurinn haldinn 23. apríl í
Bessastaðakirkju. Forseti Íslands hafði samið boðskapinn að þessu sinni
að beiðni Landsgildisstjórnar.
Gildin sáu um sögusýningu á landsmóti skáta á Úlfljótsvatni. Franch
Michelsen var sæmdur gullbjálkanum á 60 ár afmæli hans. Skátahöfðingi
Páll Gíslason mætti á Landsgildisstjórnarfund 3. október, en hann átti
50 ára afmæli þann dag. Var hann sæmdur gullbjálkanum við þetta
tækifæri. Á fundinum kom fram að alheimsmót St. Georgsgilda yrði haldið í
Álaborg í Danmörku næsta sumar og voru Jónas Sigurður Jónsson, Björn
Stefánsson og Einvarður Jósefsson kjörnir í undirbúningsnefnd fyrir ferð
þangað. Síðar kom í ljós, að ekki var áhugi hjá gildunum á ferðinni. |
|