1963: St. Georgsgildið í Hafnarfirði var stofnað 23.
maí. St. Georgsgildið í Keflavík stofnað 27. maí. Bandalag íslenskra
St. Georgsskáta, BÍG, stofnað 2. júní á Akureyri. Fundarstjóri var
Sigurður Guðlaugsson, Akureyri og fundarritari Sigurbjörn Þórarinsson.
Fyrsta stjórn BGÍ. Dúi Björnsson, Akureyri, var kosinn
landsgildismeistari og með honum í stjórn Sigurður Guðlaugsson, Allý
Þórólfsson og Kristján Hallgrímsson. Samkvæmt lögum skyldi BÍS tilnefna
fimmta manninn í stjórnina. Var Franch Michelsen, Reykjavík, tilnefndur í
stjórnina af BÍS. Í varastjórn voru kjörin Stefán B. Árnason og Karitas
Melstað. Félagar úr St. Georgsgildunum á Akureyri og í Reykjavík sátu
þetta stofnþing. |
|