Skátagildin á Íslandi

..ávallt skáti

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttir Ýmsar tilkynningar

Ýmsar tilkynningar

Landsgildinu berast tilkynningar um ýmsa fundi og ráðstefnur á vegum gildisskáta víðsvegar í heiminum. Reynt er að auglýsa og sinna Norðurlandasamstarfinu en annað fer eftir efnum og ástæðum. Eftirfarandi tilkynningar hafa borist um viðburði á árinu 2012:

 

Frakkland: Workshop 4.-8. júní. Umsóknarfrestur til 30. apríl 2012

Pilsen í Tékklandi: 15.-19. ágúst. Mið-Evrópuráðstefna

Cork á Írlandi: 25.-29.sept. Vestur-Evrópuráðstefna

Túnis: 5.-13. okt. Fundur eldri skáta um umhverfismál

 

Áhugasamir geta fengið nánari upplýsingar hjá  Hrefnu Hjálmarsdóttir landsgildismeistari Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

og Kjartani Jarlssyni erlendum bréfritari Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Warning: fsockopen(): unable to connect to 196.216.2.21:43 (Connection timed out) in /var/www/virtual/stgildi.is/htdocs/administrator/components/com_joomlastats/count.classes.php on line 1038

Sögustiklur

1966: Á Landsgildisstjórnarfundi 10. júní var rætt um að senda Jennu Jónsdóttur á þing St. Georgsgilda í Danmörku, en hún ætlaði á þjóðdansamót þar í landi. Einnig var ákveðið á þessum sama fundi að taka upp búning fyrir St. Georgsgildin, brúngrænar peysur. Panta átti nokkrar peysur og sýna þær á fundi í St. Georgsgildinu í Hafnarfirði og senda síðan nokkrar til gildanna úti á landi.

Á Landsgildisstjórnarfundi 6.október kemur fram að ágóði af tesölu St. Georgsskáta á Landsmóti skáta 1966 á Hreðavatni hafi orðið 5.020 krónur. Landsgildið sá um móttöku gesta á Landsmótinu.

Á fundinum var einnig lagt fram bréf frá landsgildismeistara Noregs um að St. Georgsgildin í Noregi, Danmörku, Íslandi og Svíþjóð hafi fund saman, þar sem rætt yrði um nánara samband milli gildanna og skáta á ýmsum stöðum.

Landsgildismeistari, Eiríkur Jóhannesson, skýrði frá tillögu frá IFOFSAG um að halda hátíðlega 24. eða 25. október ár hvert, en 25. október er stofndagur IFOFSAG og Sameinuðu þjóðanna.

Á þessu ári reisir St. Georgsgildið í Hafnarfirði skála við Hvaleyrarvatn. Skálinn var síðar vígður 25. júní 1968 og nefndur Skátalundur.

Niðurhal skjala

Fundargerd_landthings_2011.pdf 2093kB 2011-09-11 14:16:23
Landsgildisthing_2013_fundargerd.pdf 499kB 2013-08-28 16:38:54
St_Georgs___vgsla.pdf 47kB 2010-11-10 17:41:21
VinattudagsBodskapur2011.pdf 53kB 2011-10-18 17:25:38
VinttudagsBoskapur2010.pdf 88kB 2010-11-09 21:32:38
fridarlogi_kynningarbaeklingur.pdf 604kB 2010-11-26 16:16:50
landgildisthing_2015_fundargerd.pdf 2216kB 2016-05-07 14:04:54
samthykktir_skatagildanna_a_islandi_2015.pdf 194kB 2015-05-10 23:42:50
samthykktir_skatagildin_a_islandi_2013.pdf 73kB 2013-08-28 15:38:36