Skátagildin á Íslandi

..ávallt skáti

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttir Vel heppnað landsgildisþing

Vel heppnað landsgildisþing

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Landsþing St. Georgsgildanna á Íslandi var haldið í Kjarna v/ Akureyri laugardaginn 4. maí sl. Mæting var góð, um 70 fulltrúar frá öllum gildunum hittust og kynntu starf sitt síðustu tveggja ára.

Einróma var samþykkt að fækka stjórnarmönnum úr 7 í 5 og var Hrefna Hjálmarsdóttir endurkjörinn landsgildismeistari og aðrir í stjórn voru kjörin Fjóla Hermannsdóttir, Akureyri, Guðvarður B. F. Ólafsson Hafnarfirði, Hreinn Óskarsson, Keflavík og  Kjartan Jarlsson Kópavogi. Þá var Hallfríður Helgadóttir Hafnarfirði kjörinn varamaður.

Lagabreytingartillaga Guðna Gíslasonar um að í stað “Landsgildis” væri tekið upp nafnið “Skátagildin” eða “Skátagildin á Íslandi” sem daglegt nafn á samtökunum St. Georgsgildin á Íslandi. Þó nokkur umræða var um þessa tillögu en röksemdir fyrir breytingunni var sú að borið hafi á andstöðu við nafnið St. Goergsgildi, sérstaklega hjá yngri skátum, þeim sem stefnt er að fá inn í gildisstarfið. Í 1. grein samþykkta St. Georgsgildanna á Íslandi sagði að heiti samtakanna væri St. Georgsgildin á Íslandi, í daglegu máli nefnd Landsgildið. Bent var á að heitið Landsgildið segði ekkert um tengingu við skátastarf eða St. Georgsgildi og til að tengja heiti samtakanna betur við skátastarf væri rétt að taka upp heitið Skátagildin á Íslandi eða Skátagildin sem heiti samtakanna í daglegu máli. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og nefndi Guðni í ávarpi til þinggesta að semþykktin bæri vott um víðsýni þinggesta og vilja til að takast á við breytt umhverfi í starfi að því að gera Skátagildin á Íslandi sem samnefnara eldri skáta í landinu.

Samþykkt var að stjórn skipi tvær nefndir með fulltrúum úr öllum gildum, útbreiðslunefnd og laganefnd.

Góður andi var á þinginu þó smá órói hafi verið við afgreiðslu lagabreytinga. Farið var í skoðunarferð að Möðruvallarkirkju undir góðri leiðsögn Braga Guðmundssonar sagnfræðings og prófessors við HA. Þar flutti Hrefna st. Georgsboðskapinn sem saminn var af sr. Agnesi Sigurðardóttur biskup Íslands.

Þinginu lauk með hátíðarkvöldverði í Kjarna og var gríðarlega góð stemmning, fjöldi skemmtiatriða og hlegið dátt. Það fór ánægðir þinggestir heim á leið.

Heimferð Hafnfirðinganna fjögurra sem sátu þingið, Guðna, Kristjönu, Höllu og Gunnars Rafns gekk þó ekki þrautalaust því bíll Guðna bilaði rétt fyrir utan Hvammstanga og þegar þetta er skrifað sátu þau Guðni og Kristjana enn á Hvammstanga og biðu aðstoðar góðra skáta sem héldu frá Hafnarfirði með bílakerru til að sækja bílinn en Halla og Gunnar fengu far með skátum úr Kópavogi.

Fjölmargar myndir frá þinginu eru á www.facebook.com/skatagildi

Síðast uppfært: Föstudagur, 10. maí 2013 00:36  

Sögustiklur

1974: St. Georgsdagurinn haldinn 23. apríl í Bessastaðakirkju. Forseti Íslands hafði samið boðskapinn að þessu sinni að beiðni Landsgildisstjórnar.

Gildin sáu um sögusýningu á landsmóti skáta á Úlfljótsvatni. Franch Michelsen var sæmdur gullbjálkanum á 60 ár afmæli hans. Skátahöfðingi Páll Gíslason mætti á Landsgildisstjórnarfund 3. október, en hann átti 50 ára afmæli þann dag. Var hann sæmdur gullbjálkanum við þetta tækifæri. Á fundinum kom fram að alheimsmót St. Georgsgilda yrði haldið í Álaborg í Danmörku næsta sumar og voru Jónas Sigurður Jónsson, Björn Stefánsson og Einvarður Jósefsson kjörnir í undirbúningsnefnd fyrir ferð þangað. Síðar kom í ljós, að ekki var áhugi hjá gildunum á ferðinni.

Niðurhal skjala

Fundargerd_landthings_2011.pdf 2093kB 2011-09-11 14:16:23
Landsgildisthing_2013_fundargerd.pdf 499kB 2013-08-28 16:38:54
St_Georgs___vgsla.pdf 47kB 2010-11-10 17:41:21
VinattudagsBodskapur2011.pdf 53kB 2011-10-18 17:25:38
VinttudagsBoskapur2010.pdf 88kB 2010-11-09 21:32:38
fridarlogi_kynningarbaeklingur.pdf 604kB 2010-11-26 16:16:50
landgildisthing_2015_fundargerd.pdf 2216kB 2016-05-07 14:04:54
samthykktir_skatagildanna_a_islandi_2015.pdf 194kB 2015-05-10 23:42:50
samthykktir_skatagildin_a_islandi_2013.pdf 73kB 2013-08-28 15:38:36