Skátagildin á Íslandi

..ávallt skáti

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttir Evrópuráðstefna gildisskáta 2013

Evrópuráðstefna gildisskáta 2013

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Grípið tækifærið og hittum gildisskáta frá Evrópu á heimaslóðum.

Nú hafa borist meiri upplýsingar um Evrópuráðstefnu gildisskáta en það eru Norðurlöndin sem sjá um hana að þessu sinni. Ráðstefnan verður haldin dagana 4.-9. sept. 2013 og verður hún að hluta til á ferjunni Mariella sem siglir á milli Stokkhólms og Helsinki og til baka. Þann 4. sept verða skoðunarferðir fyrir þá sem þess óska.

Ráðstefnan hefst formlega fimmtudaginn 5. sept. í ráðstefnumiðstöð borgarinnar, Gamla Norra Latin. en þar verður  skráning, kynning og sameiginlegur kvöldverður.

Næsta dag þ. 6. sept. kl. 11.00 verður lagt af stað með ferjunni.  Þar verður ýmislegt um að vera, vinnusmiðjur, fyrirlestrar, söngur og samvera. Einnig verður hægt að fá sér snúning á dansgólfinu fyrir þá sem það vilja.

Þátttökulöndin eru 28 og gert er ráð fyrir 250 ráðstefnugestum.

Þema ráðstefnunar verður “Crossing boarders”. Það er ósk okkar að þátttakendur auki víðsýni sína með þátttöku í fundum og vinnu-smiðjum sem verða í boði.

Athygli er vakin á því að þátttakendur geta komið með vörur til sölu, bækur, merki, handverk. Hluti ágóða rennur til ráðstefnunnar en annað til viðkomandi landa. Nánari upplýsingar hér.

Lauslega áætlað mun ein nótt á hóteli, allur matur og ferðir fram á sunnudag kosta kr. 4500 sænskar ca. 88 þús. íslenskar. (Ekki endanlegt verð).

Að ráðstefnu lokinni geta gestir valið um að fara í  skoðunarferðir að eigin vali í Noregi, Danmörku eða Svíþjóð. 

Umsókn þarf að berast fyrir 31.mars og lokagreiðsla þann 30. júní. 

Ekki er að efa að þetta verður mikið ævintýri og því kostur sem ástæða er til að skoða vel.  

Nánari upplýsingar veitir landsgildismeistari Hrefna Hjálmarsdóttir

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og alþjóðlegur bréfritari Kjartan Jarlsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nánari dagskrá hér 

Áhugaverðar upplýsingar má finna hér

 

Sögustiklur

1970: Norðurlandaþing St. Georgsgildanna var haldið í fyrsta skipti á Íslandi, nánar tiltekið 27. til 31. júlí. Þingið sóttu 110 gildisfélagar frá hinum Norðurlöndunum, 27 frá Noregi, 30 frá Danmörku, 38 frá Svíþjóð og 15 frá Finnlandi. Auk þeirra tóku allmargir íslenskir gildisfélagar þátt í þessu fyrsta Norðurlandaþingi hér á landi og sáu um allan undirbúning og framkvæmd þess. Þingið þótti með miklum glæsibrag og takast hið besta.

Niðurhal skjala

Fundargerd_landthings_2011.pdf 2093kB 2011-09-11 14:16:23
Landsgildisthing_2013_fundargerd.pdf 499kB 2013-08-28 16:38:54
St_Georgs___vgsla.pdf 47kB 2010-11-10 17:41:21
VinattudagsBodskapur2011.pdf 53kB 2011-10-18 17:25:38
VinttudagsBoskapur2010.pdf 88kB 2010-11-09 21:32:38
fridarlogi_kynningarbaeklingur.pdf 604kB 2010-11-26 16:16:50
landgildisthing_2015_fundargerd.pdf 2216kB 2016-05-07 14:04:54
samthykktir_skatagildanna_a_islandi_2015.pdf 194kB 2015-05-10 23:42:50
samthykktir_skatagildin_a_islandi_2013.pdf 73kB 2013-08-28 15:38:36