Skátagildin á Íslandi

..ávallt skáti

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttir Vináttuboðskapur 2012

Vináttuboðskapur 2012

Margir félagar ISGF skipulögðu viðburði, vinnubúðir, námskeið og tóku þátt í ýmiskonar samfélagsviðburðum eða studdu við mismunandi samfélagsverkefni skátanna og sumir mundu eftir að senda myndir á vefsíðu ISGF, en því miður voru aðrir sem gleymdu því.
 
Á vináttudaginn skora ég á ykkur að veita öðrum gildisskátum um víða veröld hlutdeild í því verkefni sem var mikilvægast á árinu hjá ykkur. Lýsið því stuttlega og sendið það, ásamt einni eða tveimur myndum, til  www.isgf.org
 
Alþjóðasambandið er líka stolt af að gefa ykkur upplýsingar í sérsendingu, um þau verkefni sem var unnið að á liðnu ári.
 
Um þetta leyti á næsta ári verðum við að halda upp á 60 ára afmæli ISGF, svo að þið skulið undirbúa ykkur undir að taka þátt í því.
 
Vináttukveðja
 
Mida Rodriges
formaður ISGF World Committee
 
 

Sögustiklur

1968: Þetta ár eru þrjú ný gildi stofnuð í Reykjavík:

Ernir í Bústaða- og Grensásssókn hinn 1. febrúar, gildismeistari Ingvi Viktorsson,

Dalbúar fyrir Kleppsholt og Laugarnes hinn 22. febrúar, gildismeistari Einar Sigurðsson og Vestri í Vesturbæ hinn 25. október, gildismeistari Hrefna Tynes. Þessi gildi eru vígð á St. Georgsdaginn 23. apríl á Bessastöðum að viðstöddum forseta Ásgeiri Ásgeirssyni og skátahöfðingja Jónasi B. Jónssyni.

St. Georgsboðskapur Norðurlandanna var að þessu sinni saminn af forseta Íslands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni.

Borgargildið, samstarfsnefnd gildanna í Reykjavík var stofnað 13. maí 1968.

Borgargildismeistari verður Þórir Kr. Þórðarson prófessor, varagildismeistari Jón E. Ragnarsson héraðsdómslögmaður og Franch Michelsen ritari Borgargildisins.

Á Landsgildisstjórnarfundi 11. júlí segir Franch Michelsen frá því að hann hefði komið af stað blaði, Bálinu, sem fylgja á Foringjanum, þrisvar sinnum á ári, fjórar síður í miðju blaðinu. Á sama fundi er ákveðið að bjóðast til að halda Norðurlandaþing gildanna hér á landi 1970.

Niðurhal skjala

Fundargerd_landthings_2011.pdf 2093kB 2011-09-11 14:16:23
Landsgildisthing_2013_fundargerd.pdf 499kB 2013-08-28 16:38:54
St_Georgs___vgsla.pdf 47kB 2010-11-10 17:41:21
VinattudagsBodskapur2011.pdf 53kB 2011-10-18 17:25:38
VinttudagsBoskapur2010.pdf 88kB 2010-11-09 21:32:38
fridarlogi_kynningarbaeklingur.pdf 604kB 2010-11-26 16:16:50
landgildisthing_2015_fundargerd.pdf 2216kB 2016-05-07 14:04:54
samthykktir_skatagildanna_a_islandi_2015.pdf 194kB 2015-05-10 23:42:50
samthykktir_skatagildin_a_islandi_2013.pdf 73kB 2013-08-28 15:38:36